| Sf. Gutt
Það var fyrir einu ári að Jürgen Klopp stýrði Liverpool í fyrsta sinn eftir að hann tók við sem framkvæmdastjóri. Liverpool mætti Tottenham Hotspur í London og lauk leiknum án marka. Eftir slaka framgöngu síðustu vikurnar undir stjórn Brendan Rodgers þóttust stuðningsmenn Liverpool sjá batamerki á liðinu. Miklu meiri hreyfing var á leikmönnum liðsins og þeir börðust af krafti á erfiðum útivelli. Jürgen var líflegur á hliðarlínunni og það fór ekki milli mála að hann hafði fært leikmönnum sínum tiltrú og blásið þeim baráttuanda í brjóst á þeim tíma sem hann hafði unnið með þeim á æfingum á Melwood.
Þau batamerki sem sáust fyrir ári á White Hart Lane hafa haldið áfram þetta ár sem Jürgen Klopp hefur verið framkvæmdastjóri Liverpool. Tvö töp í úrslitaleikjum svíða sárt en við berum þá von í brjósti að úrslitaleikirnr verði fleiri á meðan Þjóðverjinn verður við völd og titlar muni koma í hús á Anfield!
TIL BAKA
Það var fyrir einu ári!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Goðsagnirnar unnu! -
| Sf. Gutt
Enn fjölgar á Anfield! -
| Sf. Gutt
Góðverk fyrir góðan gest -
| Sf. Gutt
Goðsagnaleikur í uppsiglingu -
| Sf. Gutt
Joe Gomez í landsliðið á nýjan leik -
| Sf. Gutt
Tveir eftir heima -
| Sf. Gutt
Leggjum allt í sölurnar til loka! -
| Sf. Gutt
Sár endir á FA bikarvegferðinni -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar!
Fréttageymslan