| Sf. Gutt

Dregið í Deildarbikarnum

Í kvöld var dregið til 4. umferðar Deildarbikarsins. Liverpool drógst gegn liði úr efstu deild og óhætt er að segja að um stórleik sé að ræða.

Liverpool mætir Tottenham Hotspur á Anfield og ljóst má vera að það verður enginn leikur að komast í næstu umferð. Kosturinn í stöðunni er að spilað verður á Anfield og nú er að vona að liðið komist enn lengra í keppninni. 

Bæði lið fóru sannfærandi í gegnum 3. umferð. Liverpool vann Derby County 0:3 í gærkvöldi og Tottenham sigraði Gillingham 5:0 í kvöld. 

Liðin mættust í London fyrr á leiktíðinni og þau skildu þau jöfn 1:1.












TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan