| Sf. Gutt

Dregið í Deildarbikarnum

Í kvöld var dregið til 3. umferðar Deildarbikarsins. Liverpool drógst gegn liði sem það hefur ekki mætt síðustu árin. Liverpool fékk útileik við Derby County. Svo vill til að Nigel Clough, framkvæmdastjóri Burton Albion, var stjóri Derby fyrir stuttu. Liðin leiða saman hesta sínu í næsta mánuði.

Derby, eins og Burton, sem Liverpool burstaði í gærkvöldi leikur í næst efstu deild. Liðið komst í 3. umferð eftir að hafa slegið Carlisle United út 14:13 í ævintýralegri vítaspyrnukeppni eftir 1:1 jafntefli. Vonandi gengur allt vel en Derby er með betra lið en Burton. 


 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan