| Sf. Gutt

Tilboð í Brad Smith

Tilboð hefur borist í vinstri bakvörðinn Brad Smith. Bournemouth á tilboðið og hermt er að forráðamenn Liverpool hafi samþykkt tilboðið sem á að vera upp á sex milljónir sterlingspunda. 

Verði af vistaskiptum hittir Brad Jordan Ibe fyrrum félaga sinn, hjá Liverpool, fyrir hjá Bournemouth en hann fór þangað fyrr í sumar fyrir 15 milljónir punda. Ástralinn hefur leikið 11 leiki fyrir Liverpool og talið var að hann ætti framtíð fyrir sér hjá félaginu. 

Fari Brad hefur Liverpool aðeins Alberto Moreno sem vinstri bakvörð og ólíklegt er að lagt verði upp í leiktíðina með hann sem eina valkost í stöðuna. 





TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan