| Grétar Magnússon

Dregið í FA bikar

Fyrr í dag var dregið í 5. umferð ensku bikarkeppninnar. Komist okkar menn áfram gegn West Ham í endurteknum leik er útileikur fyrir dyrum.

Sigurvegarinn úr þessari viðureign mætir Blackburn á útivelli í næstu umferð. Leikirnir í þessari umferð fara fram helgina 19.-22. febrúar.

Liverpool og Blackburn mættust í þessari keppni í fyrra og þurfti tvo leiki til að skera úr um hvort liðið kæmist áfram. Seinni leikurinn fór fram á Ewood Park þar sem Coutinho skoraði eina mark leiksins.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan