| Sf. Gutt

Áfram í unglingabikarnum

Unglingalið Liverpool komst áfram í Unglingabikarkeppninni í gærkvöldi. Liðið hefur nú komist áfram í gegnum tvær umferðir. Í gærkvöldi vann Liverpool 3:0 sigur á Cardiff City. Ben Woodburn, Corey Whelan og Brooks Lennon skoruðu mörkin.

Í desember vann Liverpool 2:1 sigur á Ipswich Town. Adam Phillips og Toni Gomes skoruðu.

Hér eru myndir úr leiknum við Cardiff af Liverpoolfc.com.









 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan