| Sf. Gutt

Meiðsli stríða Jordan Henderson

Jordan Henderson hefur verið mikið frá vegna meiðsla á leiktíðinni og nokkuð erfitt hefur verið að komast fyrir meiðslin sem eru í hæl ef rétt er skilið. Nú hefur komið í ljós að líklega verður ekki alveg hægt að lækna það sem amar að og hugsanlega eiga þessi meiðsli eftir að sitja strik í ferilinn. 

Eitthvað hefur verið fjallað um að Jordan muni hér eftir spila kvalinn eða þá að vera deyfður fyrir hvern leik og komi til með að missa af fjölda leikja. Sjálfur hefur hann borið þær fréttir til baka og telur að hann verði einfaldlega að læra að lifa með þessu og passa sig. 

Líklega mun tíminn leiða í ljós hvernig þetta allt þróast allt eins og annað. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan