| Sf. Gutt

Steven Gerrard aftur í Liverpool búninginn!


Steven Gerrard mun aftur klæðast Liverpool búningnum á nýju ári. Þetta var tilkynnt á hinni opinberu heimasíðu Liverpool í dag!

Ekki er það þó svo að um sé að ræða aðallið Liverpool. En Steven mun spila með úrvalsliði fyrrum leikmanna Liverpool sem mætir áströlsku úrvalsliði í Sydney 7. janúar og með honum í liði verða leikmenn á borð við Jamie Carragher, John Arne Riise, Dietmar Hamann og Ian Rush. Gérard Houllier mun stjórna liðinu.


Steven er farinn að hlakka til að spila með gömlum félögum og vinum. ,,Það verður frábært að spila með goðsagna liði Liverpool. Liðið lítur vel út og það verður gaman að fara út á völl með piltunum. Við eigum bestu stuðningsmenn í heimi og ég er viss um að það verður tilfinningaþrungin stund að spila fyrir framan þá á nýjan leik!"

Það verður sannarlega gaman að sjá Steven Gerrard í búningi Liverpool á nýjan leik.



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan