| Sf. Gutt

Enn án sigurs

Varalið Liverpool, eða undir 21. árs liðið, tapaði 2:1 á mánudagskvöldið í Reading. Þetta var þriðji deildarleikur liðsins og enn hefur það ekki unnið leik sem er ekki nógu gott. 

Heimamenn komust í 2:0 áður en sjálfsmark kom Liverpool inn í leikinn. Liverpool sótti af krafti undir lokin og markmaður Reading varði tvívegis meistaralega. Hann tryggði liði sínu þar með sigur. 

Liverpool: Firth, Whelan, Maguire, Cleary, Ilori (Randall 70. mín.), O'Hanlon (Madger Gomes 80. mín.), Canos, Brannagan, Wilson, Teixeira (Dunn 70. mín.) og Kent. Ónotaðir varamenn: Wheeler og Brewitt.

Liðið hefur ekki byrjað vel en hafa ber í huga að búið er að lána eina fimm af bestu leikmönnum liðsins. Í gærkvöldi vann liðið 3:1 sigur á Birmingham City í æfingaleik. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan