| Grétar Magnússon

Rickie Lambert seldur til WBA

Fyrr í dag birtum við frétt um að tilboð hefði borist í Rickie Lambert frá West Bromwich Albion. Allt gekk hratt fyrir sig og salan hefur nú verið staðfest.

Eins og flestir vita kom Lambert til félagsins frá Southampton síðasta sumar og hefur hann aldrei farið leynt með það að hann er mikill stuðningsmaður félagsins. Félagsskiptin í fyrra voru því draumi líkust fyrir hann.

En tímabilið sjálft var hinsvegar langt frá því að vera draumi líkast fyrir hann og alla tengda félaginu. Uppstokkun á sóknarmönnum Liverpool í sumar hefur þýtt að krafta Lambert var ekki óskað lengur og Tony Pulis og félagar hjá WBA hafa lengi haft augastað á honum.

Lambert er 33 ára gamall og spilaði alls 36 leiki fyrir félagið þar sem hann skoraði 3 mörk.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan