| Sf. Gutt
TIL BAKA
Hvað verður um Ítalina?
Það má ljóst vera þeir landar Fabio Borini og Mario Balotelli eru til sölu fyrir rétt verð. En skyldu einhverjir vilja kaupa þá félaga?
Fabio Borini lék 18 leiki með Liverpool á síðustu leiktíð og skoraði einu sinni. Sunderland vildi kaupa hann fyrir ári en Ítalinn ákvað að vera áfram hjá Liverpool og berjast fyrir sæti sínu. Ólíklegt er að hann komist í liðið hjá Liverpool á komandi sparktíð. Talið er að Aston Villa hafi spurst fyrir um hann.
Mario Balotelli tók þátt í 28 leikjum á nýliðinni leiktíð og skoraði fjögur mörk. Hann olli miklum vonbrigðum og var mikið frá verkum veikur eða meiddur til skiptis. Nú í byrjun mánaðar þegar leikmenn Liverpool voru nýkomnir til æfinga lést fósturfaðir hans og fékk Mario leyfi til að vera nokkra daga á Ítalíu. Hann líkt og landi hans voru ekki teknir með í æfingaferðina til Ástralíu og Asíu. Að minnsta kosti tvö félög á Ítalíu, Sampdoria og Bologna, eiga að hafa sýnt ítalska landsliðsmanninum áhuga. Forráðamenn beggja félaga finnst Mario þó dýr og eins er hann ekki léttur á fóðrum.
Við sjáum hvað setur í þessu sem öðru!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Verðum að hafa trú á verkefninu! -
| Sf. Gutt
Við höldum baráttunni áfram! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Köld vatnsgusa! -
| Sf. Gutt
Ruben Amorim vísar öllu á bug! -
| Sf. Gutt
Conor Bradley með gullverðlaun -
| Sf. Gutt
Óvænt tap! -
| Sf. Gutt
Átta liða úrslit -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Góðar meiðslafréttir!
Fréttageymslan