| Sf. Gutt

Framkvæmdir samkvæmt áætlun!

Framkvæmdir við stækkun Aðalstúkunnar, Main Stand, á Anfield ganga samkvæmt áætlun. Hægt er að fylgjast með framkvæmdunum á sérstöku svæði á Liverpoolfc.com. Búið er að forma stigaganga og ýmislegt sem verður inni í stúkunni. Nú á dögunum var miklu bogavirki komið fyrir sem verður yfir þakinu og þótti það mikill áfangi.

Reynt er að koma sem mestu í verk núna í sumar og svo verður farið að huga að innviðum þegar leiktíðin hefst. Liverpool spilar á útivelli í fyrstu umferðinni en forráðamenn félagsins báðu um það svo hægt væri að vinna sem lengst að því sem þarf að ljúka áður en Anfield fer að taka á móti áhorfendum á nýjan leik. Stúkan á að vera tilbúin að ári.

Hér er hægt að fylgjast með framkvæmdum á nýju stúkunni á Liverpoolfc.com.

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan