| Sf. Gutt

Glen Johnson fór til Stoke

Svo því sé haldið til haga þá gekk Glen Johnson til liðs við Stoke City. Samningur hans við Liverpool rann út í sumar og því fékkst ekkert fyrir kappann. Glen var reyndar á mjög háu kaupi þannig að Liverpool sparar eftir að hann fór. Það er að minnsta kosti hægt að nota launalið hans í annað núna. 

Stoke er sjötta liðið sem Glen spilar með á ferli sínum. Auk Liverpool hefur hann spilað með West Ham United, Millwall, Chelsea og Portsmouth. Svo vill til að fyrsta og síðasta mark Glen fyrir Liverpool kom á móti Stoke! Á meðfylgjandi mynd má einmitt sjá síðasta markið sem tryggði Liverpool 1:0 sigur.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan