| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Benteke léttur á fyrstu æfingunni
Christian Benteke mætti á sína fyrstu æfingu hjá Liverpool í gær. Ekki er annað að sjá en að drengurinn sem allra augu beinast að þessa dagana hafi skemmt sér konunglega með sínum nýju liðsfélögum.
Á æfingunni voru bæði þeir leikmenn sem voru ekki valdir með í æfingaferðina til Asíu og Ástralíu, svo sem þeir félagar og samlandar Fabio Borini og Mario Balotelli, og einnig þeir sem fengu lengra sumarfrí vegna þátttöku í mótum, eins og Emre Can, Coutinho og Roberto Firmino.
Það var greinilega létt yfir mannskapnum á æfingunni og vel virtist fara á með Benteke og hinum nýju liðsfélögum hans. Meira að segja Balotelli er brosandi út að eyrum, sem gerist nú ekki á hverjum degi.
Hér má sjá myndasyrpu frá æfingunni.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Goðsagnirnar unnu! -
| Sf. Gutt
Enn fjölgar á Anfield! -
| Sf. Gutt
Góðverk fyrir góðan gest -
| Sf. Gutt
Goðsagnaleikur í uppsiglingu -
| Sf. Gutt
Joe Gomez í landsliðið á nýjan leik -
| Sf. Gutt
Tveir eftir heima -
| Sf. Gutt
Leggjum allt í sölurnar til loka! -
| Sf. Gutt
Sár endir á FA bikarvegferðinni -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar!
Fréttageymslan