| Grétar Magnússon

Kaupin á Benteke staðfest

Nú undir kvöldmat voru kaupin á Belganum Christian Benteke staðfest en sóknarmaðurinn sterki kemur frá Aston Villa og skrifaði undir langtímasamning við félagið.

Benteke er 24 ára gamall og stóðst hann læknisskoðun hjá félaginu í London áður en hann hélt til Liverpool til að skrifa formlega undir samning. Hann kom til Aston Villa árið 2012 frá belgíska félaginu Genk og skoraði 49 mörk í 101 leik fyrir Villa.

Hann hefur einnig fest sig í sessi í belgíska landsliðinu og hefur skorað 7 mörk í 24 leikjum þar.

Eftir að hafa skrifað undir sagði Benteke: ,,Ég er mjög ánægður með að vera kominn til félagsins og ég vil þakka eigendunum, Ian Ayre og að sjálfsögðu stjóranum fyrir að hafa lagt mikið á sig til að fá mig hingað. Það er erfitt að sýna tilfinningar sínar þegar maður hefur áorkað eitthvað þessu líkt en auðvitað er ég mjög ánægður."

Hér má sjá fleiri myndir af kappanum.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan