| Sf. Gutt

Þrír til sölu!

Þrír af sóknarmönnum Liverpool frá síðustu leiktíð eru til sölu eftir því sem best er vitað. Um er að ræða Ítalana Fabio Borini og Mario Balotelli. Eins mun Rickie Lambert vera falur.  

Það er á hinn bóginn stór spurning hvort einhver áhugi er á því hjá öðrum félögum að kaupa þessa leikmenn. Rickie hefur verið orðaður við West Bromwich Albion og Bournemouth svo einhver félög séu nefnd. Það má því telja líklegt að hann seljist. Á hinn bóginn segja sumir að Rickie ætti að vera áfram þar sem hann er fæddur og uppalinn í Liverpool og fátt er um slíka menn í herbúðum Rauða hersins.

Líklega verður erfiðara að selja landana Fabio og Mario.

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan