| Sf. Gutt

Christian enn í sigtinu!

Eftir því sem fjölmiðlar halda helst þá er Belginn Christian Benteke ennþá í sigtinu hjá Liverpool. Skiptar skoðanir eru um það hjá stuðningsmönnum Liverpool. 

Líklegt er að Liverpool muni þurfa að borga Aston Villa rúmlega 30 milljónir sterlingspunda fyrir kappann. Talið er að hann hafi áhuga á að fara til Liverpool verði það í boði.

Það eru á hinn bóginn mjög skiptar skoðanir meðal stuðningsmanna Liverpool um Christain og mörgum þykir að leikstíll hans muni kannski ekki henta Liverpool vel. Hann hefur líka verið talsvert meiddur og ekki má Liverpool við að kaupa framherja sem verður mikið meiddur þó slíkt verði aldrei vitað fyrirfram. 

Við sjáum hvað setur.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan