| Sf. Gutt

Nathaniel Clyne á leiðinni

Liverpool Echo greinir frá því að Nathaniel Clyne hafi farið í læknisskoðun í Liverpool í dag og á næstu dögum verði tilkynnt um kaup á honum. Liverpool og Southampton munu hafa náð samkomulagi um viðskipti og á kaupverðið að vera 12 og hálf milljón sterlingspunda. 

Nathaniel er hugsaður í stöðu hægri bakvarðar. Þar vantar góðan mann og vonandi verður pilturinn traustsins verður því Brendan Rodgers má ekki við því að misstíga sig í innkaupum sumarsins. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan