| Sf. Gutt

Af Suður Ameríkukeppninni

Átta liða úrslitum í Suður Ameríkukeppninni er nú lokið. Fulltrúar Liverpool eru komnir í sumarfrí því landslið þeirra féllu úr keppni. 

Síle komst fyrst liða í undanúrslit eftir að hafa unnið Úrúgvæ 1:0. Úrúgvæ nær því ekki að verja titil sinn en heimamenn halda áfram. Sebastian Coates var á bekknum frá upphafi til enda. Hann lék einn leik í keppninni. 

Perú fór áfram eftir 3:1 sigur á Bólivíu.

Argentína vann Kólumbíu 5:4 í vítaspyrnukeppni. Ekkert var skorað í leiknum sjálfum sem var auðvitað framlengdur. 

Brasilía tapaði í vítakeppni fyrir Paragvæ. Staðan var 1:1 eftir framlengingu. Paragvæ vann svo vítaspyrnukeppnina 4:3. Philippe Coutinho var í byrjunarliði Brasilíu og stóð sig vel. Hann lék allt til enda og skoraði í vítaspyrnukeppninni. Philippe spilaði þrjá af fjórum leikjum Brasilíumanna í keppninni. Roberto Firmino, sem varð leikmaður Liverpool á mótinu ef svo mætti segja, var í byrjunarliðinu gegn Paragvæ. Hann skoraði eitt mark á mótinu.

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan