| Heimir Eyvindarson

Liverpool að landa Firmino

Svo virðist sem Liverpool sé að kaupa Brasilíumanninn Roberto Firmino frá Hoffenheim. Ian Ayre mun vera í Chile (á Copa America) til að ganga frá kaupunum.

UPPFÆRT: Nú í morgunsárið hefur Liverpool staðfest að kaupin séu í höfn. Einu formlegheitin sem eftir eru er læknisskoðun Brassans, sem hann mun undirgangast strax eftir Copa America. Við bjóðum Firmino hjartanlega velkominn í raðir Liverpool og gerum honum betri skil hér á síðunni í dag.

Nafn Brasilíumannsins hefur verið nefnt nokkrum sinnum að undanförnu í hinum ýmsu slúðurmiðlum, en engar almennilegar heimildir hafa verið fyrir því að hann væri á leiðinni fyrr en í morgun að fréttir bárust af því að Liverpool og Hoffenheim ættu í raunverulegum viðræðum. Nú undir kvöld kom síðan frétt í Liverpool Echo, þess efnis að samningar væru nánast í höfn.

Við vonum að þessar fréttir verði staðfestar á morgun, en Firmino er geysilega spennandi leikmaður. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan