| Sf. Gutt

Raheem Sterling vill fara!


BBC birtir frétt þess efnis nú í kvöld að Raheem Sterling muni fara fram á sölu frá Liverpool þegar leiktíðinni lýkur. Þetta verða að teljast trúlegar fréttir því BBC fer sjaldan með fleipur. Liverpool Echo flytur líka sömu frétt.

Samkvæmt fréttinni vill Raheem sem sagt fara. Liverpool bauð honum veglega kauphækkun í vetur en þessi efnilegi strákur virðist einfaldlega ekki vilja vera lengur hjá Liverpool og þá er auðvitað best að hann fari.

Raheem var frábær á síðustu leiktíð og fram eftir þessari. Síðustu vikurnar hefur hann á hinn bóginn verið slakur og lítið sýnt. Segja má að hann hafi ekkert látið að sér kveða eftir að hann hafnaði kauphækuninni sem honum var boðin. Brendan Rodgers sagði um daginn að Raheem myndi ekki fara fet. Fari hann fram á sölu gæti það breyst. 


Steven Gerrard hvatti Raheem núna fyrir helgina til að vera áfram hjá Liverpool því það væri besti kosturinn fyrir hann á þessum tímapunkti. Nú er að sjá hvað verður. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan