| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Þá er búið að gera upp alla reikninga í sambandi við hvaða leikmaður Liverpool var bestur í mars. Fjórða mánuðinn í röð hafi þið, lesendur Liverpool.is, valið Philippe Coutinho sem þann besta. Það þarf að fletta því upp hvort einhver hafi áður unnið þessa kosningu fjóra mánuði í röð. Að minnsta kosti er það sjaldgæft í meira lagi. Fyrsta dag mars skoraði hann sitt eina mark í mánuðinum en það var glæsimark gegn Englandsmeisturunum. Philippe var sterkur í hinum leikjunum.

Annar var miðjumaðurinn Jordan Henderson sem skoraði þrjú falleg mörk og þar á meðal dýrmætt sigurmark í Swansea. Jordan var frábær á miðjunni og leiddi liðið með sóma. Þriðji kom miðvörðurinn Martin Skrtel sem hefur átt frábæra leiktíð. Martin meiddist reyndar í einum leiknum og var borinn af velli en hann er með þeim harðari og mætti í næsta leik.




Philippe Coutinho 71%

Jordan Henderson 11%

Martin Skrtel 8%

Emre Can 5%

Joe Allen 2%

Einhver annar 1%

Greidd og gild atkvæði voru 353.

  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan