| Sf. Gutt

Fimm ungliðar lánaðir

Það munar ekkert um það. Liverpool hefur lánað fjóra ungliða í dag og gær. Fyrstan skal telja Jordan Williams, sem er hér á mynd en hann fór til Notts County. Liðið leikur í þriðju deild. Jordan lék sinn fyrsta leik með aðalliði Liverpool gegn Middlesbrough í Deildarbikarnum í haust og skoraði hann í vítaspyrnukeppninni löngu. Hann þykir efnilegur og hefur Brendan valið hann sex sinnum á varamannabekkinn á leiktíðinni. 

Jordan Lussy fór til Bolton sem leikur í næst efstu deild. Tveir voru lánaðir til Burton Albion sem er í efsta sæti í fjórðu efstu deildinni. Um er að ræða þá Kevin Stewart og Jack Dunn. Tilkynnt var um lán þessara tveggja í gær. 

Rétt um daginn var svo markmaðurinn Danny Ward lánaður til Morecambe sem spilar í þriðju deild. Hann hefur verið varamaður Simon Mignolet frá því að Brad Jones meiddist í desember. 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan