| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Nú er kominn tími til að upplýsa hvern leikmann Liverpool þið völduð þann besta í febrúar. Þriðja mánuðinn í röð er það sá sami sem varð fyrir ykkar vali. Um er að ræða Brasilíumanninn Philippe Coutinho. Það er sannarlega ekki oft sem sami leikmaður er valinn sá besti þrjá mánuði í röð!

Philippe var magnaður í febrúar og skoraði tvö glæsileg mörk. Fyrst sigurmark í bikarsigri á Bolton og svo annað mikilvægt mark sem lagði grunninn að öðrum góðum útisigri í Southampton. Hann var að auki mjög góður í öðrum leikjum og átti þátt í mörkum sem aðrir skoruðu. 

Jordan Henderson var annar en hann var mjög sterkur á miðjunni og átti mjög góða leiki. Simon Mignolet hefur verið mjög vaxandi frá því hann vann aftur sæti sitt eftir að hafa verið settur út úr liðinu. Belginn hefur svarað gagnrýnisröddum á réttan hátt. Með því að bæta leik sinn!






Philippe Coutinho 74%

Jordan Henderson 15%

Simon Mignolet 5%

Jordan Ibe 4%

Raheem Sterling 0%

Einhver annar 0%

Greidd og gild atkvæði voru 556.




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan