| Sf. Gutt

Raheem segist ánægður!

Raheem Sterling hefur enn ekki gert nýjan samning við Liverpool. Hann segist þó ánægður hjá félaginu og vill vera áfram. Forráðamenn Liverpool hafa gert honum veglegt samningstilboð en Raheem hefur enn ekki tekið því. Fjölmiðlar telja að ráðgjafar hans séu að reyna að fá betri samning en ekki er líklegt samningamenn Liverpool bæti mikið eða neitt um betur frá því sem komið er. 

Miðað við hvað Raheem segir sjálfur þá er hann ánægður hjá Liverpool. Um daginn áréttaði hann það og sagðist vonast til að samningamálin muni leysast sem fyrst. Ekki er annað hægt en að vona það besta í þessu máli því ekki væri gott að missa þennan efnilega pilt í burtu. Það ætti að koma Liverpool til góða að þeir Daniel Sturridge og Philippe Coutinho hafa báðir skrifað undir nýja samninga við Liverpool á þessari leiktíð. Vonandi fylgir Raheem fordæmi þeirra sem fyrst!


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan