| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Rauði herinn fór loksins að ná vopnum sínum í jólamánuðinum eftir erfiða haustmánuði og vetrarbyrjun. Hver var bestur Rauðliða í desember? Brasilíski strákurinn Philippe Coutinho var mjög góður á undirbúningstímabilinu. En þegar leiktíðin hófst gekk ekkert. Hann komst þó loksins í gang í desember og var mjög góður. 

Annar var Adam Lallana. Þessi hæfileikaríki miðjumaður var meiddur framan af leiktíð en hefur verið að komast í gang. Hann skoraði þrjú mörk í desember og lét vel að sér kveða. Fyrirliðinn Steven Gerrard var líka sterkur í desember og skoraði tvö mörk. Hann er ekki búinn að vera hafi einhver haldið það!






Philippe Coutinho 41%
 
 Adam Lallana 19%

Steven Gerrard 16%
 
Raheem Sterling 15%
 
Lucas Leiva 7% 

 Einhver annar 2%

Greidd og gild atkvæði voru 443.




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan