| Grétar Magnússon

Breytingar á leikjum eftir áramót

Nokkrar breytingar á leikjum liðsins eftir áramót voru tilkynntar í dag.

Um er að ræða leiki í febrúar og mars. Nágrannaslagur við Everton á Goodison Park fer fram laugardaginn 7. febrúar en breyttur leiktími er kl. 17:30.

Útileikur við Southampton sem upphaflega átti að fara fram laugardaginn 21. febrúar hefur verið fluttur til sunnudagsins og verður flautað til leiks kl. 16:15.

Heimaleikur við Manchester City hefur einnig verður færður yfir til sunnudags, nánar tiltekið 1. mars og hefjast leikar kl. 12:00. Heimaleikur við Burnley hefur þá í kjölfarið einnig verður færður aftur um einn dag, leikurinn fer fram kl. 20:00 miðvikudaginn 4. mars.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan