| Grétar Magnússon

Staðfestar dagsetningar í Deildarbikar

Búið er að gefa út hvenær Liverpool og Chelsea eigast við í undanúrslitum Deildarbikarsins í janúar.

Fyrri leikurinn fer fram á Anfield þriðjudaginn 20. janúar og verður flautað til leiks kl. 19:45. Ákkúrat viku síðar, þriðjudaginn 27. janúar mætast liðin á ný, þá á Stamford Bridge.

Báðir leikir eru að sjálfsögðu í beinni útsendingu á öllum helstu sjónvarpsstöðvum.

Liverpool vann Deildarbikarinn síðast árið 2012 og þá lá Chelsea í valnum á leiðinni. Vonandi verður sama uppskrift þessa leiktíðina!
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan