| Sf. Gutt

Enn eitt bakslagið hjá Daniel!


Það ætlar ekki af Daniel Sturridge að ganga. Hann meiddist á æfingu í gær eða fyrradag og allt útlit er á að endurkomu hans seinki enn frekar.  

Hermt er að Daniel hafi meiðst á læri og mun hann eiga að fara í nánari skoðun í dag. Nógu hefur endurkomum Daniel seinkað en hann meiddist upphaflega á landsliðsæfingu í byrjun september. Hann hafði þá skorað eitt mark í þremur leikjum og byrjað leiktíðina vel. 


Sóknarmannavandræði Liverpool halda því áfram. Mario Balotelli er nefnilega líka tæpur fyrir útileik Liverpool og Crystal Palace á sunnudaginn. Hann fór meiddur heim úr herbúðum ítalska landsliðsins í síðustu viku en ekki er ljóst hvernig meiðsli hans hafa þróast. Hvorki hann, Rickie Lambert eða Fabio Borini hafa ennþá skorað fyrir Liverpool í deildinni. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan