| Sf. Gutt
TIL BAKA
Þarf meiri tíma!
Serbinn Lazar Markovic hefur ekki staðið undir væntingum frá því hann kom til Liverpool í sumar. Þó nokkuð miklar vonir voru bundnar við hann því hann fór á kostum með Benfica á síðasta keppnistímabili. Lazar segist þurfa meiri tíma til að koma sér í gang hjá Liverpool.
,,Maður veit hvernig þetta gengur fyrir sig í knattspyrnunni. Ég er að koma til og er að aðlagast vel. Þetta tekur þó eitthvað lengri tíma en í heildina tekið þá líður mér vel og allir hafa tekið mér sérlega vel. Ég gæti ekki beðið um meira.
,,Ég er hinn ánægðasti og það er fyrir öllu. Ég er í liði með goðsögninni Steven Gerrard, stuðningsmönnunum þykir vænt um mig og það er frábært að vera á Anfield. En eins og ég sagði þá þarf ég svolítið lengri tíma."
Það að Lazar þurfi lengri tíma til að aðlagast ensku knattspyrnunni kom líka fram í máli Brendan Rodgers á dögunum. Það er alkunna að leikmenn frá meginlandi Evrópu eiga oft erfitt með að fóta sig í ensku knattspyrnunni og sumir ná aldrei að gera það. Við verðum að vona að Lazar sé ekki einn þeirra því þetta er hæfileikaríkur strákur sem á að geta gert góða hluti.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Goðsagnirnar unnu! -
| Sf. Gutt
Enn fjölgar á Anfield! -
| Sf. Gutt
Góðverk fyrir góðan gest -
| Sf. Gutt
Goðsagnaleikur í uppsiglingu -
| Sf. Gutt
Joe Gomez í landsliðið á nýjan leik -
| Sf. Gutt
Tveir eftir heima -
| Sf. Gutt
Leggjum allt í sölurnar til loka! -
| Sf. Gutt
Sár endir á FA bikarvegferðinni -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar!
Fréttageymslan