| Grétar Magnússon

Stjórinn hefur trú á mönnum

Brendan Rodgers segir að leikmenn sínir hafi sýnt og sannað áður að þeir eru fljótir að jafna sig eftir tapleiki og engin breyting verði þar á eftir vonbrigðin gegn Aston Villa um helgina.


Ekki þarf að fjölyrða um þann leik en vonbrigðin voru mikil í leikslok á Anfield. En það er stutt á milli leikja um þessar mundir og strax á þriðjudagskvöldið snýr Meistaradeildin aftur á Anfield.

Rodgers hefur fulla trú á að Liverpool séu vel í stakk búnir til að bæta frammistöðu sína og ná í rétt úrslit þegar Ludogorets Razgrad mæta á svæðið.

,,Þetta er hópur sem hefur sýnt það og sannað þann tíma sem ég hef verið hér að við verðum að jafna okkur á vonbrigðunum og snúa okkur að næsta leik. Við verðum að halda áfram. Einbeiting okkar fer nú beint í næsta leik á þriðjudagskvöldið."

,,Það verður stórkostleg stund fyrir okkur að leika á ný í Meistaradeild Evrópu og vonandi jöfnum við okkur fljótt á úrslitunum gegn Villa með því að vinna okkar fyrsta leik í riðlakeppninni."



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan