| Sf. Gutt

Af Tyrkjum

Þegar íslenska landsliðið hefur átt landsleik framundan höfum við stundum skoðað hvaða leikmenn Liverpool hefur átt frá því landi. Nú er það Tyrkland.

Einn Tyrki hefur spilað með Liverpool en það er Nuri Sahin. Hann var þó aldrei formlega leikmaður Liverpool því hann lék sem lánsmaður frá Real Madrid. Nuri kom til Liverpool sumarið 2012 en náði ekki að fóta sig í ensku knattspyrnunni og lék síðast í desember sama ár. Hann spilaði 12 leiki og skoraði þrjú mörk.

Nuri endaði svo hjá Borussia Dortmund en hann spilaði þar áður en hann fór til Real. Hann hefur spilað með tyrkneska landsliðinu frá 2005 og á 40 leiki og tvö landsliðsmörk á afrekaskrá sinni. Nuri er meiddur núna um stundir og er því ekki í landsliðshópnum sem er kominn til Íslands til að spila hér í kvöld.  

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan