| Grétar Magnússon

Liverpool mætir Middlesbrough

Í kvöld var dregið í 3. umferð enska Deildarbikarsins og mætir Liverpool Middlesbrough á heimavelli. Boro leikur nú í næst efstu deild og er nú um miðja deildina.

Leikurinn verður annaðhvort þriðjudaginn 23. eða miðvikudaginn 24. september. Á síðasta tímabili komst liðið ekki lengra en í þriðju umferð er liðið datt út gegn Manchester United á Old Trafford. Það er því óskandi að fleiri leikir verði hjá liðinu á þessu tímabili.

Hér fyrir neðan er svo drátturinn í heild sinni:


Chelsea - Bolton Wanderers

Arsenal - Southampton

West Bromwich Albion - Hull City

Crystal Palace - Newcastle United

Leyton Orient - Sheffield United

Cardiff City - Bournemouth

Sunderland - Stoke City

Derby County - Reading

Liverpool - Middlesbrough

MK Dons - Bradford City

Manchester City - Sheffield Wednesday

Burton Albion - Brighton Hove & Albion

Swansea - Everton

Shrewsbury - Norwich City

Fulham - Doncaster Rovers

Tottenham Hotspur - Nottingham Forest



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan