Þrír laskaðir
Tapleikurinn gegn Manchester City virðist hafa kostað sitt. Einn fór meiddur af velli og tveir aðrir höltruðu síðustu mínúturnar. Glen Johnson meiddist á læri og sagði Brendan Rodgers eftir leikinn að það þyrfti að skoða hann betur til að meta meiðslin. Hugsanlega er um að ræða tognun aftan í læri og þá verður Glen ekki með næstu vikurnar.
Nýliðinn Alberto Moreno sneri sig illa á ökkla þegar hann festist í gervigrasi utan við hliðarlínuna. Óvíst er um að hann verði með á móti Tottenham. Þetta var dæmi um að gervigrasfletir við hliðarlínu geta verið varasamir.
Martin Skrtel fékk þungt högg á sig eftir samstuð og var lengi á fætur. Óvíst hvort hann hlaut eitthvað verra af högginu.
Allir þrír meiddust á síðustu tíu mínútum leiksins og Liverpool lék síðustu mínúturnar manni færri. Það má því segja að þessar síðustu mínútur hafi kostað sitt.
-
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Goðsagnirnar unnu! -
| Sf. Gutt
Enn fjölgar á Anfield! -
| Sf. Gutt
Góðverk fyrir góðan gest -
| Sf. Gutt
Goðsagnaleikur í uppsiglingu -
| Sf. Gutt
Joe Gomez í landsliðið á nýjan leik -
| Sf. Gutt
Tveir eftir heima -
| Sf. Gutt
Leggjum allt í sölurnar til loka! -
| Sf. Gutt
Sár endir á FA bikarvegferðinni -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar!