| Sf. Gutt

Besti árangur í rúma öld!

Þegar Daniel Sturridge skoraði sigurmark Liverpool gegn Southampton náði hann besta árangri sem leikmaður Liverpool hefur náð í rúma öld.

Daniel lék sinn 50. leik með Liverpool á móti Southampton og markið sem hann skoraði var það 36. sem hann skorar fyrir félagið. Hann náði þar með besta skori í fyrstu 50 leikjum með Liverpool frá því George Allen skoraði 41 mark á árunum 1895/96.



George á sem sagt félagsmetið áfram en skor Daniel er magnað og það besta hjá Liverpool í efstu deild en George skoraði hluta af sínum mörkum í næst efstu deild. Besti árangur leikmanns Liverpool, fyrir utan Daniel, á seinni árum átti Fernando Torres en hann skoraði 34 mörk í sínum fyrstu 50 leikjum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Daniel nær góðum árangri í markaskorun en hann skoraði í fyrstu þremur leikjum sínum með Liverpool sem hafði ekki gerst lengi og á síðustu leiktíð skoraði hann í átta leikjum í röð sem var jöfnun á félagsmeti sem John Aldridge og Dick Forshaw deildu. 

Hér má kynna sér feril George Allen á LFChistory.net.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan