| Sf. Gutt

Ekkert staðfest um Mario

Ekkert hefur verið staðfest um Mario Balotelli úr herbúðum Liverpool. Annar leikmaður á að vera í bakhöndinni verði ekki af því að Mario komi til Liverpool.

Mario er kominn til Liverpool og mun hafa farið í læknisskoðun á Melwood í gærkvöldi. Það hefur þó ekkert verið staðfest um að hann verði leikmaður Liverpool. 

Hermt er að forráðamenn Liverpool séu með Samuel Etoo í bakhöndinni verði ekki af því að Ítalinn komi. Einhverjir fjölmiðlar telja sig hafa heimildir fyrir því að Samuel hafi farið í læknisskoðun í París. Mögulega er þessi saga úr lausu lofti gripin. 

Þetta mál ætti allt að skýrast núna eftir helgina.
 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan