| Sf. Gutt

Búið að ná samkomulagi um Mario



Traustustu fjölmiðlar Bretlands telja að Liverpool og AC Milan hafi náð samkomulagi um kaupverð á Mario Balotelli. Samkvæmt þeim fréttum mun Liverpool borga 16 milljónir sterlingspunda fyrir ítalska landsliðsmanninn. Ekkert á að koma í veg fyrir að Mario hafi vistaskipti.

Mario á nú að vera á leið til Liverpool eða kominn þangað til að semja um kaup og kjör. Ef allt gengur upp gæti Mario verið löglegur með Liverpool þegar liðið tekur hús á Englandsmeisturum Manchester City á mánudagskvöldið. Jú, allt getur gerst og hverjum hefði dottið í hug um síðustu helgi að Mario Balotelli myndi vera orðinn leikmaður Liverpool fyrir næsta leik!?  






TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan