Lovren orðinn leikmaður Liverpool
Lovren eru fimmtu kaup Brendan Rodgers í sumar og alls þriðji leikmaðurinn sem keyptur er frá Southampton.
Skömmu eftir undirskriftina sagði Lovren: ,,Þetta er draumur að rætast. Ég er ánægður og glaður að vera kominn hingað. Ég er stoltur og get ekki beðið eftir því að byrja. Ég veit að félagið á milljónir stuðningsmanna - Liverpool er meira en bara knattspyrnufélag."
,,Eftir að ég spilaði á Anfield á síðasta tímabili sagði ég við sjálfan mig: Einn dag vona ég að ég geti spilað fyrir Liverpool. Stuðningsmennirnir sjá strax frá fyrstu mínútu að ég er leikmaður sem gef ávallt 100% innan vallar."
Dejan á góðar minningar frá Anfield því hann skoraði eina markið í leiknum þegar Southampton vann þar í heimsókn á liðnu hausti. Hann á vonandi eftir að skora nokkur mörk fyrir Liverpool á Anfield á komandi árum.
-
| Sf. Gutt
Verðum að hafa trú á verkefninu! -
| Sf. Gutt
Við höldum baráttunni áfram! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Köld vatnsgusa! -
| Sf. Gutt
Ruben Amorim vísar öllu á bug! -
| Sf. Gutt
Conor Bradley með gullverðlaun -
| Sf. Gutt
Óvænt tap! -
| Sf. Gutt
Átta liða úrslit -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Góðar meiðslafréttir!