| Grétar Magnússon

Markovic er spennandi leikmaður

Brendan Rodgers segir að nýjasti leikmaður félagsins, Lazar Markovic, sé gríðarlega spennandi leikmaður.


Í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins eftir að kaupin voru staðfest sagði Rodgers:  ,,Þetta eru spennandi kaup fyrir okkur og eitthvað sem eykur gæðin í leikmannahópnum hvað sóknarleikinn varðar á næsta tímabili."

,,Hann stóð sig frábærlega með Benfica á síðasta tímabili og hefur sýnt og sannað hann hefur getuna til að standa sig vel í Evrópukeppni líka, sem er mikilvægt fyrir okkur.  Lazar er fjölhæfur og getur spilað í mörgum stöðum, en mér líkar best við er hvernig hann sækir á mótherjann, hann er alltaf tilbúinn að fá boltann og vill láta hlutina gerast.  Hann mun því passa vel inní spilamennsku okkar hjá Liverpool."

,,Að kaupa hann svona ungan er líka mjög gott fyrir okkur, vegna þess að þá höfum við tækifæri til að þróa hæfileika hans innan hópsins og bæta leik hans enn frekar.  Hans karakter er þannig að hann vill sífellt bæta sig og sýna framfarir; það er einmitt það sem við leitum að í leikmönnum."

Hér má sjá fleiri myndir af Markovic á Melwood.




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan