| Sf. Gutt

Steven kveður Luis!

Luis Suarez mun ekki spila aftur með Liverpool. Steven Gerrard sér mikið eftir þessum magnaða leikmanni og kvaddi hann með fögrum orðum á Instagram síðu sinni daginn sem tilkynnt var að Luis færi frá Liverpool.

,,Þetta er tilfinningaþrunginn dagur fyrir mig og mig langar til að segja hversu mikil ánægja það hefur verið fyrir mig að spila með hinum ótrúlega hæfileikaríka Luis. Mig langar til að þakka honum fyrir hans framúrskarandi framlag innan vallar á meðan hann hefur spilað með @liverpoolfc og óska honum og fjölskyldu hans alls hins besta á Spáni þar sem ný ævintýri bíða. #lfclegend



Víst er að Steven Gerrard, eins og aðrir leikmenn Liverpool, mun sakna Luis Suarez mikið. Luis er jú óviðjafnanlegur leikmaður! 
 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan