| Grétar Magnússon

Luis Alberto lánaður

Spánverjinn Luis Alberto hefur verið lánaður til Malaga í spænsku Úrvalsdeildinni út næsta tímabil.  Félagið endaði í 11. sæti La Liga á síðasta tímabili.



Þessi 21 árs gamli leikmaður var keyptur síðasta sumar frá Sevilla u.þ.b. 8 milljónir punda og kom hann við sögu í 12 leikjum hjá félaginu á síðasta tímabili, þar af 9 leiki í ensku Úrvalsdeildinni.

Hann spilaði einnig nokkrum sinnum fyrir U-21 árs lið félagsins og skoraði m.a. þrennu með þeim í leik í september í fyrra.

Malaga greiða alls 1 milljón punda fyrir lánið og öll laun leikmannsins á meðan á lánstímanum stendur.




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan