| Sf. Gutt

Martröð að mæta SAS!

Þeir Luis Suarez og Daniel Sturridge tóku upp þráðinn að nýju í Stoke á sunnudaginn þegar Liverpool vann 3:5. Daniel kom þá aftur til leiks eftir meiðsli og fór á kostum. Luis skoraði tvö mörk og lagði upp eitt fyrir Daniel. Sjálfur skoraði Daniel eitt og lagði upp annað fyrir Luis. Saman hafa þeir, sem kallaðir eru SAS, skorað 34 mörk á leiktíðinni, Luis 22 og Daniel 12. Það er algjör martröð að fást við þá Luis og Daniel. Þetta er álit Jamie Redknapp fyrrum leikmanns Liverpool. Hann fjallaði um þá félaga í pistli sínum í Daily Mail í gær.

,,Þetta var rosalegur leikur á Britannia í gær og sóknarleikur Liverpool var stórfenglegur. Þeir voru samt eiginlega hættulegastir þegar þeir voru ekki með boltann. Þeir biðu eftir Stoke og stútuðu þeim svo með skyndisóknum. Svo mætti sóknartvíeykið SAS aftur. Það var magnað að sjá Daniel Sturridge og Luis Suarez spila aftur saman, skora mörk og leggja upp mörk fyrir hvor annan."
 
,,Það sýnir breiddina í liðinu að Philippe Coutinho var tekinn af velli og Sturridge sendur inn á. Það hlýtur að vera martröð fyrir þreyttan varnarmann andstæðinganna að sjá hann koma inn á. Hvað er svo hægt að segja meira um Suarez? Stundum lítur út fyrir að hann sé ekkert áhugasamur um hvað er að gerast en svo ræðast hann til atlögu og allt springur í loft upp."

Já, það var sannarlega magnað að fá Daniel aftur til leiks en hann er búinn að vera frá vegna meiðsla frá því í nóvember. Samvinna, markaskorun og góð heilsa þeirra Luis Suarez og Daniel Sturrigde gæti ráðið úrslitum um hversu hátt Liverpool nær í deildinni. Gott betur en það. Lokastaða liðsins ræðst einfaldlega af þessu!  

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan