| Sf. Gutt

Andy búinn í læknisskoðun

Andy Carroll er á leið frá Liverpool. Þær fréttir bárust í kvöld að hann væri búinn að fara í gegnum læknisskoðun í herbúðum West Ham United. Opinberlega hafa vistaskiptin ekki verið staðfest en það verður væntanlega ekki langt í það.

Andy var auðvitað lánsmaður hjá Hömrunum á síðustu leiktíð og þar á bæ vildu menn fá hann til félagsins fyrir fullt og fast. Allt stefnir í að svo verði þó heimildir hafi verið fyrir því að Andy hafi haft efasemdir um að fara til West Ham. Hann mun haft haft áhuga á að fara aftur til Liverpool og fá tækifæri til að sanna sig þar. Á meðfylgjandi mynd að neðan er Andy í læknisskoðun hjá Liverpool áður en hann gekk til liðsins í lok janúar 2011.

Liverpool og West Ham United hafa fyrir nokkru náð samkomulagi um kaupverð. Ekki liggur alveg fyrir hversu hátt það er en traustir fréttamiðlar, eins og vefsíða BBC, telja það 15 milljónir sterlingspunda. Liverpool keypti Andy fyrir 35 milljónir þannig að tapið er heldur mikið en það tjáir ekki að fást um það. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan