| Sf. Gutt

Mark Fabio dugði lítt

Spánverjar unnu Evrópukeppni undir 21. árs liða núna í kvöld. Fabio Borini skoraði annað mark sitt í keppninni en það dugði lítt. Spánverjar virðast bestir í flestum aldursflokkum þessi árin og þetta lið þeirra gaf hvergi eftir í úrslitaleiknum í Jerúsalem í Írsael. Svo fór að Spánn vann 4:2 og varði titil sinn frá því mótið fór fram síðast.
 
Thiago Alcantara skoraði þrennu í fyrri hálfleik en síðasta mark hans var úr víti. Ciro Immobile jafnaði reyndar í 1:1 en staðan í hálfleik var 3:1. Isco gerði svo út um leikinn með vítaspyrnu. Fabio Borini, sem kom Ítalíu í úrslitin, lagaði stöðuna í 4:2 þegar ellefu mínútur voru eftir en sigri Spánverja var ekki ógnað.

Fabio má vera ánægður með sitt eftir að hafa skorað tvö mörk á mótinu. Hann er þó líklega búinn að fá nóg af Spánverjum því hann var í liðshópi Ítala sem fóru í í úrslit á Evrópumóti aðallandsliða í fyrra þar sem þeir töpuðu 4:0 í úrslitum fyrir Heims- og Evrópumeisturunum.  

Spánverjar vörðu því titil sinn og það sama má segja um aðalliðið sem hefur unnið tvö síðustu Evrópumót 2008 og 2012.

Hér eru myndir úr leiknum af Liverpoolfc.com.



  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan