| Sf. Gutt

Henrikh Mkhitaryan í sigtinu

Armeninn Henrikh Mkhitaryan er í sigtinu hjá forráðamönnum Liverpool. Vefsíða BBC greinir frá því að Brendan Rodgers hafi mikinn áhuga á þessum magnaða miðjumanni sem vakti mikla athygli á síðasta keppnistímabili þegar hann skoraði 25 deildarmörk fyrir úkraínska liðið Shakhtar Donetsk. Skoruðu ekki aðrir meira þar í landi.

Samkvæmt fréttum BBC og Liverpool Echo ætla forráðamenn Liverpool að gera sitt allra besta til að næla í Armenann. Það gæti þó sett strik í reikninginn að önnur félög hafa líka áhuga og jafnvel lið sem eiga sæti í Meistaradeildinni. Gæti orðið erfitt að keppa við slík félög.
 
Henrikh þykir koma sterklega inn í þá fyrirætlun Brendan Rodgers að auka við markafjölda Liverpool á næsta keppnistímabili. Hann er lykilmaður í landsliði Armena sem vann óvæntan stórsigur 0:4 á Dönum í Kaupmannahöfn í síðustu viku og skoraði hann síðasta markið. 







TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan