| Heimir Eyvindarson

West Ham að ganga frá kaupum á Andy

Sam Allardyce segir að West Ham og Liverpool hafi gengið frá samkomulagi um félagaskipti Andy Carroll til Lundúnaliðsins. Lítið sé eftir annað en að skrifa undir.

Kaupverðið mun vera 15 milljónir punda og Carroll mun fá 100 þúsund pund í vikulaun. Bæði Carroll og Allardyce eru staddir erlendis í sumarfríi en um leið og þeir snúa til baka verða samningar undirritaðir.

„Það er búið að ganga frá samkomulaginu að stærstum hluta", segir Allardyce í viðtali við Sunday People. „Öll peningahliðin milli félaganna er frágengin."

Þetta þýðir að Liverpool tapar 20 milljónum á hinum 24 ára gamla framherja, en hann var eins og menn muna keyptur á heilar 35 milljónir punda frá Newcastle í janúar 2011. Þar að auki mun Liverpool þurfa að borga Carroll 2 milljónir punda í starfslokagreiðslu, þar sem hann var seldur án þess að fara fram á sölu.



 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan