| Sf. Gutt

Landsleikjafréttir

Undanúrslit Evrópumóts undir 21. árs leikmanna fóru fram í Ísrael í kvöld. Fabio Borini kom heldur betur við sögu! Ítalía komst í úrslitaleikinn með því að vinna Holland 1:0. Fabio skoraði markið dýrmæta á 78. mínútu. Hann skoraði þá af öryggi af stuttu færi. Vel gert hjá Ítalanum sem hefur átt erfitt uppdráttar síðasta árið sökum meiðsla.

Í hinum undanúrslitaleiknum unnu Spánverjar Noreg 3:0. Það verða því Ítalir og Spánverjar sem leiða saman hesta sína í úrslitaleiknum sem fer fram á þriðjudaginn. Þessar þjóðir eru greinilega sterkar því aðallandslið þeirra léku til úrslita á Evrópumótinu í fyrra. Spánn vann þann leik 4:0.

Hér eru myndir úr leik Ítalíu og Hollands af Liverpoolfc.com.



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan