| Heimir Eyvindarson

Simon til Liverpool samkvæmt BBC

Svo virðist sem belgíski markvörðurinn Simon Mignolet sé á leið til Liverpool. BBC og Liverpool Echo hafa nú bæst í hóp þeirra miðla sem fullyrða að viðskiptin séu á lokastigi.

Sagt er að Liverpool hafi boðið 6,5 milljónir punda í Belgann, en Sunderland hafi neitað því boði og farið fram á 10 milljónir. Síðan mun Arsenal hafa blandað sér í leikinn, en ekki hefur komið fram hversu háa upphæð Lundúnaliðið bauð í Mignolet.

Liverpool mun hafa hækkað boðið um 2 milljónir punda og samkvæmt frétt BBC er líklegt að félögin nái samkomulagi um upphæð í kringum 9 milljónir. Þó er ekki loku fyrir það skotið að Arsenal blandi sér í slaginn á elleftu stundu. Neil Jones blaðamaður Liverpool Echo segir að Liverpool hafi skoðað þá Michel Worm hjá Swansea og Costel Pantilimon hjá Manchester City, en Mignolet hafi verið efstur á óskalista Rodgers og félaga. 
 
.

Simon Mignolet er 25 ára gamall, fæddur 6. mars 1988. Hann hefur verið á mála hjá Sunderland síðan 2010 og leikið 90 leiki fyrir aðallið félagsins. Góð frammistaða hans í ensku deildinni hefur tryggt honum fast sæti í belgíska landsliðinu. 

  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan