| Heimir Eyvindarson
Liverpool Echo segist hafa fyrir því áreiðanlegar heimildir að Liverpool sé við það að ganga frá kaupum á hinum tvítuga Spánverja, Luis Alberto frá Sevilla.
Nafn Alberto hefur áður komið upp í leikmannaslúðri sumarsins en ekki með eins afgerandi hætti og Echo slær upp í dag.
Þessi ungi og efnilegi sóknartengiliður var í láni hjá Barcelona í vetur og þótti standa sig vel með B liði félagsins. Þrátt fyrir það nýtti Barcelona sér ekki kauprétt í samningi milli félagsins og Sevilla.
Luis Alberto þykir mikið efni. Hann er sagður njóta sín best í holunni fyrir aftan sóknarmennina þar sem góðir sendinga- og skothæfileikar hans valda oftar en ekki miklum usla.
Hann lék 37 leiki með Barcelona B í vetur og skoraði í þeim 11 mörk. Þar að auki átti hann 17 stoðsendingar. Hann segist sjálfur hafa tekið miklum framförum og vera tilbúinn til þess að taka næsta skref. Hvort það skref verður í átt til Bítlaborgarinnar í norðri eða eitthvert allt annað verður að koma í ljós, en ef heimildir Liverpool Echo reynast réttar þá er þetta næsti maður inn hjá Liverpool.
TIL BAKA
Luis Alberto næsti maður inn?
Liverpool Echo segist hafa fyrir því áreiðanlegar heimildir að Liverpool sé við það að ganga frá kaupum á hinum tvítuga Spánverja, Luis Alberto frá Sevilla.Nafn Alberto hefur áður komið upp í leikmannaslúðri sumarsins en ekki með eins afgerandi hætti og Echo slær upp í dag.
Þessi ungi og efnilegi sóknartengiliður var í láni hjá Barcelona í vetur og þótti standa sig vel með B liði félagsins. Þrátt fyrir það nýtti Barcelona sér ekki kauprétt í samningi milli félagsins og Sevilla.
Luis Alberto þykir mikið efni. Hann er sagður njóta sín best í holunni fyrir aftan sóknarmennina þar sem góðir sendinga- og skothæfileikar hans valda oftar en ekki miklum usla.
Hann lék 37 leiki með Barcelona B í vetur og skoraði í þeim 11 mörk. Þar að auki átti hann 17 stoðsendingar. Hann segist sjálfur hafa tekið miklum framförum og vera tilbúinn til þess að taka næsta skref. Hvort það skref verður í átt til Bítlaborgarinnar í norðri eða eitthvert allt annað verður að koma í ljós, en ef heimildir Liverpool Echo reynast réttar þá er þetta næsti maður inn hjá Liverpool.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

