Af Álfukeppninni

Álfukeppnin hefst í Brasilíu á morgun. Þrír leikmenn Liverpool eru enn ekki komnir í sumarfrí og þeir keppa þar. Álfukeppnin var fyrst haldin árið 1992. Fyrstu árin var keppnin boðsmót prinsins í Saudí Arabíu. Keppnin þróaðist síðar í að verða nokkurs konar lokaæfing fyrir Heimsmeistarakeppnina og er nú haldin árið áður en úrslitakeppni hennar fer fram. Keppnin er haldin í því landi sem úrslitakeppni HM fer fram í. Keppnin er auðvitað nokkurs konar sjónvarpsmót en hún er líka kærkomið tækifæri fyrir gestgjafa HM til að æfa sig í öllu því sem tengist stórkeppninni að ári.
Eftirtaldar þjóðir hafa unnið keppnina. Innan sviga er sýnt hvar keppnin var haldin.
1992: Argentína (Saudí Arabía)
1995: Danmörk (Saudí Arabía)
1997: Brasilía (Saudí Arabía)
1999: Mexíkó (Mexíkó)
2001: Frakkland (Suður Kórea og Japan)
2003: Frakkland (Frakkland)
2005: Brasilía (Þýskaland)
2009: Brasilía (Suður Afríka)
2013: ????? (Brasilía)
Átta þjóðir keppa í Álfukeppninni í ár. Þær eru Brasilía (Gestgjafar), Spánn (Heims- og Evrópumeistarar), Mexíkó (Norður Ameríkumeistarar), Úrúgvæ (Suður Ameríkumeistarar), Japan (Asíumeistarar), Nígería (Afríkumeistarar), Tahítí (Eyjaálfumeistarar) og Ítalía (Silfurlið frá síðasta Evrópumóti).
Ítalía fær keppnisrétt þar sem Spánn er bæði Heims- og Evrópumeistari.
Keppt er í tveimur riðlum og leika tvö efstu lið í hvorum riðli saman í undanúrslitum. Í A riðli eru Brasilía, Japan, Mexíkó og Ítalía. Í B riðli leika Spánn, Úrúgvæ, Nígería og Tahíti. Úrslitaleikur keppninnar fer fram í Ríó þann 30. júní.
Fulltrúar Liverpool í Álfukeppninni 2013.

Spánn: Jose Reina.

Úrúgvæ: Luis Suarez og Sebastian Coates.
Hér má kynna sér keppnina á vefsíðu hennar.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

